Menning
Þjóðahátíð 2012
Þjóðahátíð 2012
Þjóðahátíð 2012 - Myndir Sigurður Mar
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

08.05.2012

Vel heppnuð Þjóðahátíð í Nýheimum

Vel heppnuð Þjóðahátíð í Nýheimum að baki

Á Laugardaginn síðasta fór fram Þjóðahátíð í Nýheimum í annað sinn við mjög góðar undirtektir. Átta þjóðir kynntu menningu sína að þessu sinni fyrir gestum og gangandi en það voru Eþíópía, Holland, Ísland, Marokkó, Pólland, Sri Lanka, Tæland og Perú.

Boðið var upp á þjóðlegan mat frá öllum löndum, hægt var að skoða allskyns hluti, myndir og landakort, ásamt myndböndum. Kynningar voru á hverju landi fyrir sig með almennum upplýsingum um stærð, fjölda íbúa, atvinnuvegi og annað.

Einnig var hægt að versla ýmsar vörur á hátíðinni og mikið var gert úr þjóðbúningum og fatnaði á hátíðinni en það myndaði skemmtilegan sýn á hvert land, en þess má geta að 15 konur voru klæddar upp í Sari til að kynna Sri Lanka.

Talið er að um 400 til 500 manns hafi heimsótt Þjóðahátíðina enda þröngt í Nýheimum á meðan á henni stóð. Hátíðin hefur verið haldin einu sinni áður eins og komið hefur fram og fékk mjög góðar undirtektir þá eins og nú og fyrirhugað er að hafa hátíð af þessu tagi á tveggna til þriggja ára fresti.

Þess má geta að í Austur - Skaftafellssýslu býr fólk frá yfir 20 löndum og því ætti hátíð af þessu tagi að geta vaxið vel hér.

Við viljum þakka öllum þeim sem styrktu hátíðna þetta árið en það eru Menningarráð Suðurlands, Skinney Þinganes, Verslunin Nettó, Rauði Kross Íslands og Sveitarfélagið Hornafjörður.

Fleiri myndir frá hátíðinni er hægt að nálgast á Facebook síðu Menningarmiðstöðvar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica