Menning
Frá hátíðarhöldunum á laugardag
Frá hátíðarhöldunum á laugardag

12.04.2012

Humarhátíð 2012

Kæru Hornfirðingar nær og fjær

Nú líður að 20. bæjarhátíð Hornfirðinga Humarhátíð, en hún verður haldin helgina 22-24 júní 2012. Undanfarin ár hefur hátíðin verið haldin fyrstu helgina í júlí en á opnum fundi í vetur kom skýrt fram að Hornfirðingar vilja sjá breytingar og þess vegna kom fram ný dagsetning. Þegar hornfirðingar hófu bæjarhátíðina 1992 var hátíðin oftast nefnd Hátíð á Höfn eða Hátíð á Hornafirði því var síðan breytt í Humarhátíð. Það nafn hefur unnið sér sess og nú getum við með stolti sagt að við búum í humarbænum Höfn. Margir Íslendinga nefna einnig Höfn í samhengi við humarinn.

Hornfirðingar vilja halda Humarhátíð, það kom skýrt fram á fundi nú í vetur. Undanfarin ár hafa félagasamtök séð um undirbúning hátíðarinnar. Ný humarhátíðarnefnd var skipuð í febrúar síðastliðnum og eru í henni einstaklingar héðan úr sveitarfélaginu sem koma að skipulagningu hátíðarinnar í ár ásamt fulltrúum frá sveitarfélaginu, Knattspyrnudeild Sindra og Björgunarfélagi Hornafjarðar. Í ár var farið í það að auglýsa eftir framkvæmdastjóra fyrir hátíðina og í byrjun apríl tók til starfa Kristín Sigríður Kristjánsdóttir.

Humarhátíð getur aldrei orðið vegleg nema með hjálp heimamanna og fyrirtækja hér á staðnum. Við eigum að vera stolt að því að vera búin að halda bæjarhátíð hér á Höfn samfleytt í 20 ár með stakri prýði.

Því er mikilvægt að allir leggi hönd á plóginn svo hátíðin verði okkur öllum til sóma.

Humarhátíðarnefnd 2012

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica