Menning
Kvískerjaráðstefna 2012
Kvískerjaráðstefna 2012
Hálfdán Björnsson frá Kvískerjum
Mynd 2 af 2
1 2

21.03.2012

Kvískerjaráðstefna á Smyrlabjörgum í Suðursveit

Miðvikudaginn 14. mars var haldin Kvískerjaráðstefna á Smyrlabjörgum í Suðursveit. Á ráðstefnunni voru kynnt verkefni og niðurstöður rannsókna sem hlotið hafa styrki frá Kvískerjasjóði.
Sjóðurinn var stofnaður árið 2003 af Umhverfisráðuneytinu og hafa fjölmörg verkefni hlotið styrki. Á ráðstefnunni voru m.a. kynntar rannsóknir á landnámi gróðurs og dýra á skerjum sem eru að koma í ljós við hopun Vatnajökuls, Helgi Björnsson lýsti landslag undir jökli og mögulegu umhverfi á svæðinu við eftir daga jökulsins, þá var sagt frá rannsóknum er varða gosið í Öræfajökli 1362 og skráningarverkefni sem hófst síðasta ár þar sem yfirgefin hús til sveita eru skráð og mynduð. Ýmislegt fleira bar á góma þennan dag og góðar umræður sköpuðust um verkefnin.

Yfir 80 gestir sóttu ráðstefnuna í góðu yfirlæti húsráðenda. Stjórn Kvískerjasjóðs stóð fyrir ráðstefnunni en um undirbúning og framkvæmd sá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Ráðstefnan var haldin á 85 ára afmælisdegi Hálfdáns Björnssonar frá Kvískerjum og var afmælisbarnið viðstatt og þáði góðar óskir í tilefni dagsins.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra setti ráðstefnuna og tók þátt í pallborðsumræðum ásamt þeim Hjalta Þór Vignissyni, Ármanni Höskuldssyni og Sigurlaugu Gissurardóttur.
Nánari upplýsingar um erindin og þau verkefni sem hlotið hafa styrki frá sjóðnum, má finna á heimasíðu sjóðsins www.kviskerjasjodur.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica