Undirbúningur fyrir Humarhátíð 2012
Humarhátíð 2012
Nú er farið að styttast í vorið og vorverkin kalla. Eitt af þeim er að undirbúa Humarhátíð og er það að komast á fullt skrið.
Hátíðin verður haldin dagana 22.-24. júní. Humarhátíðarnefnd er að myndast og óskum við eftir formanni/verkefnastjóra fyrir Humarhátíð 2012.
Nánari upplysingar um starfið er að finna í nýjasta tölublaði Eystrahorns og einnig inn á http://www.facebook.com/hummihumar.
Stærsti samningur sem gerður hefur verið fyrir komandi Humarhátíð er þó við veðurguðina. Þeir hafa lofað sumarblíðu meðan að á hátíðinni stendur.Vonumst við til þess að þeir standi við sinn samning :-)
Humarhátíðarnefnd 2012



