Afhending styrkja frá Sveitarfélaginu Hornafirði veittir í síðustu viku
Afhending styrkja frá Sveitarfélaginu
Afhending styrkja og Menningarverlauna fór fram á fimmtudaginn í síðustu viku í Nýheimum fyrir fullu húsi. Veittir voru styrkir frá Bæjarráði, úr Skóla, íþrótta og tómstundanefnd, úr Atvinnu og menningarmálanefnd og einnig voru veittir styrkir úr Atvinnu og Rannsóknarsjóði Sveitarfélagsins. Alls voru 43 verkefni sem hlutu styrki. Hér að neðan er yfirlit yfir styrkhafa og hér neðst er nánari útlistun á verkefnum sem Atvinnu og rannsóknarsjóður veitti styrki fyrir.
Pdf skjal yfir umsóknir í atvinnu og rannsóknarsjóð 2012 er að finna hér.
Atvinnu og menningarmálanefnd veitti 13 styrki til eftirfarandi aðila:
Hlynur Pálmason – Myndlistarsýning
Samkór Hornafjarðar – Kórastarf
Lúðrasveit Hornafjarðar – Félagsstarf
Þorsteinn G. Sigurbergsson – Menningarstarf
Leikfélaga Hornafjarðar – Félagsstarf
Hornfirska Skemmtifélagið – Félagsstarf
Kvennakór Hornafjarðar – Kórastarf
Jón Sölvi – Menningarstarf
Karlakórinn Jökull – Kórastarf
Brynja Dögg - Kvikmyndahátíð
Bútasaumsfélagið Ræmurnar – Félagsstarf
Gleðigjafar Kór aldraðra – Kórastarf
Listvinasjóður Hornafjarðar – Menningarstarf
Bæjarráð veitti 6 styrki til eftirfarandi samtaka:
Björgunarfélagið Kári –Starf
Félag aldraðra í Öræfum – Félagsstarf
Skógræktarfélag A – Skaft – Starf
Framhaldsskóli A – Skaft – Starf
Landgræðsla ríkisins – Starf
Legóhópurinn Hornsílin – Félagsstarf
Skóla, íþrótta og tómstundanefnd veitti 2 styrki til eftirfarandi Félagasamtaka:
UMF Máni – Félagsstarf
Golfklúbbur Hornafjarðar – Félagsstarf
Atvinnu og Rannsóknarsjóður veitti 17 styrki til eftirfarandi aðila:
Art Bjarg
Vinnustófa og í búðir fyrir listafólk. Húsnæði til leigu í skemmri og lengri tíma, samvinna við skóla, námskeiðahald. Markhópur, innlendir og erlendir listamenn. Sýningar og námskeið í samvinnu við aðila innan svæðis.
Villibráð
Vöruþróun á selkjöti á sælkeramarkað.Fullvinnsla selkjöts sem sælkeraafurð. Efling matarmenningar úr héraði og rík tenging við sögu svæðisins. Þróun og nútímavæðing vinnslu og meðferðar afurðarinnar.
Náttúrulega ehf
Þróun framleiðslu sem hefur verið starfandi í tvö ár, afurðir verið seldar a heimamarkað, markaðssetning utan svæðisins tímabær. Tilraunir með fleiri jurtablöndur fyrirhugaðar, hönnun vörumerkis, gæðahandbók og þróun umbúða. Af tilraunastigi yfir á framleiðslustig.
Litlahorn
Merking gönguleiða í landi Horns, söfnun og skráning sögu svæðisins og merkingar á gönguleiðinni.
Millibör
Sérhæfing a sviði hönnunar og framleiðslu fatnaðar og fylgihluta undir vörumerkjum Millibör og Arfleifð. Þátttaka í Fashion with Flavor. Ny sköpun á því atvinnusvæði sem fyrirtækið mun starfa á.
Þórbergssetur
Kanna byggingarsögulegt gildi ástand og mögulegar viðgerðir, viðræður við eigendur um björgun, viðgerðir og nýtingu, söfnun upplýsinga um sögu einstakra húsa, vinna að því að koma einstökum húsum í ákveðin not. Eyðibýli og menningarmál, eyðibýli og byggðamál, eyðibýli og atvinnumál, nýting í ferðaþjónustu.
Uppruni
Rannsókn á hlutum sem hafa verið hannaðir/smíðaðir hér á svæðinu. Hlutir þessi eiga að hafa það sameiginlegt að hafa verið viðbragð þess sem gerði hann við einhverri þörf í daglegu lífi og störfum fólks á svæðinu. Svo sem verkfæri, stólar, göngustafir, brennimerki, vinnuföt, eldhúsáhöld, kistlar, hlutir sem gerðir voru fyrir jöklagöngur, hárspennur osfram.
Skráning og myndir teknar af hlutunum og með rannsókn verður skapaður grundvöllur fyrir frekari hönnun og vöruþróun.Töfra Tröll - Sagan heldur áfram
Hönnun og framleiðsla á ýmsum barnavörum. Vörurnar tengdar við sögur og sagnir af tröllum, tröllskessum og álfum á Íslandi og sérstaklega frá Austur-Skaftafellssýslu.
Fashion with Flavor - Nordic
Samstarfsverkefni ýmissa hönnuða þar sem matur, náttúra og arfleifð þjóða er tvinnaður saman á skemmtilegan hátt og leitast við að öll skynfæri verði fyrir upplifun.
Rannsóknarsetur HHÍ
Öflun, samantekt og úrvinnsla upplýsinga þannig að hægt sé að leggja raunhæft mat á efnahagslegt umfang ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Grunnur að aðferðafræði hagrænnar úttektar sem nýtist síðar við uppfærslu og nánari úrvinnslu. Nýtist bæði fyrir svæðið í heild og fyrir einstaka fyrirtæki.
Hrafnhildur Magnúsdóttir
Vinna viðskiptaáætlun og markaðskönnun fyrir veitingastofu sem sérhæfir sig í grænmetis– og hráfæði.
Aquival Visum
Til umsóknar á alþjóðlegu einkaleyfi á vöru félagsins. Trygging geng óheimilli framleiðslu annarra á vörunni og styrkja þannig fjárhag og rekstur fyrirtækisins.
Gönguleiðir og áningarstaðir
Auka aðgengi ferðamanna að sem flestum svæðum. Þarfagreining og prentun korta, samvinna við ýmsa aðila. Reiðleiðir og hjólaleiðir einnig merktar inná kortin.
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
Útivistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Reynt að ná sérstaklega til þeirra barna sem ekki finna sig í þróttaiðkun. Ánægjuleg upplifun tengd útivist og náttúruupplifun.
Þekkingarnet Austurlands
Búa til brú á milli fyrirtækja á svæðinu og nemenda í sérnámi þar sem fyrirtækin geta nýtt sér krafta nemendanna um leið og þeir fá verkefni sem nýtast þeim í námi. Vonast er til að þetta tengslanet og samband sem kemst á milli fyrirtækja og námsmanna verði til atvinnusköpunar og stuðli að því að nemendur geti snúið heim aftur og fundið störf við hæfi.
Í Ríki Vatnajökuls
Þarfagreining á stöðu matvælaframleiðenda á svæðinu og stuðning við hönnun á umbúðum til sölu og markaðssetningar. Með verkefninu á að efla sölu og markaðshlið starfseminnar.
Í Ríki Vatnajökuls
Endurprentun á jarðminjabæklingi á ensku og íslensku. 5.000 eintök. Bæklingurinn er afrakstur NEED verkefnis Háskólaseturs og hefur verið mjög vinsæll hjá ferðamönnum.



