Menning
Mynd tekin inni í gömlubúð
Mynd tekin inni í gömlubúð
Mynd 2 af 2
1 2

27.02.2012

Nemendur í Safnafræði við Háskóla Íslands heimsækja Hornafjörð

Nemendur í Safnafræði kynna sér starfsemi á svæðinu

Fimmtudaginn 1.mars næstkomandi heimsækja nemendur í Safnafræði við Háskóla Íslands Hornafjörð. Ástæða heimsóknar þeirra hingað er sú að þeir ætla að kynna sér þá starfsemi sem er fyrir hendi og vinna verkefni þar sem sjónum er beint að svæðinu.

Við flutning Gömlubúðar mun aðstaða Byggðarsafnsins til sýningarhalds breytast og unnið er að því að fara nýjar leiðir í tengingu ferðaþjónustu og miðlunar menningararfs. Heimsókn safnafræðinema er liður í þessum breytingum og þróun.

Það er áhugavert fyrir okkur Hornfirðinga að fá nemendurna í heimsókn og nota tækifærið og kynna þeim hugmyndir okkar og fá liðsinni þeirra við að vega og meta kosti og galla. Nemendurnir munu koma til með að fjalla til dæmis um ferðaþjónustuvæðingu og menningarstarfsemi. Kvikmyndaferðamennsku of hvernig safnastarfsemi/sýningar Byggðarsafnsins gætu komið til með að líta út árið 2020.

Nemendurnir verða á Höfn til og með sunnudeginum 4. mars en þá munu þeir kynna verkefnin sín í Nýheimum klukkan 10:00. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og Menningarmiðstöðin hvetur alla þá sem áhuga hafa á að mæta og taka þátt í umræðum um þessi verkefni að kynna sér þær hugmyndir sem uppi eru um Sögustaðinn Hornafjörð.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica