Menning
Eistnaflug
Eistnaflug
Eistnaflug - Þórgunnur Þórsdóttir

26.01.2012

Sýningin [´anli:t] opnar í fremra rými Listasafns

Fyrsta einkasýning Þórgunnar Þórsdóttur

Sýningin [´anli:t] eða andlit er fyrsta ljósmyndasýning föndrarans og ljósmyndarans Þórgunnar Þórsdóttur.

Þórgunnur hefur lengi vel haft áhuga á mannlífi og manneskjunni og hefur verið á vappi með myndavélina sína frá árinu 2007 og tekið myndir af ferðum sínum, uppákomum en þó aðallega fólki. Síðastliðið ár hefur hún tekið mikið af ljósmyndum tengdum tónlist, hvort sem það er í tengslum við tónleika, plötuumslög eða tónleikaferðir. Þórgunnur hefur um nokkurn tíma tekið myndir af fólki úti á lífinu og því fólki sem hún hefur komist í kynni við í gegnum árin og eignast þannig brot úr lífum þeirra til minningar.

Myndefni sýningarinnar eru svarthvítar ljósmyndir sem teknar voru árið 2011 á þriggja daga Metal tónlistarhátíðinni Eistnaflugi.

Þórgunnur nam myndlist á Listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og útskrifaðist þaðan árið 2011. Partur af lokaverkefni Þórgunnar úr skólanum er til sýnis á Bókasafninu.

Sýningin opnar klukkan 16:00 fimmtudaginn 26. janúar og stendur til 29. febrúar. Aðgangur er ókeypis og Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 8:30 til 12:00 og 13:00 til 15:30.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica