Ný sýning í Listasafni Hornafjarðar
Sýningin Aðföng - gömul og ný
Listasafn Hornafjarðar opnar sýninguna Aðföng – gömul og ný fimmtudaginn 26. janúar klukkan 16:00. Á sýningunni eru verk eftir 6 listamenn sem allir eru tengdir Hornafirði á einn eða annan hátt. Verkin eru fjölbreytt eins og þau eru mörg og eru öll í eigu Menningarmiðstöðvar.
Fjögur verk eftir Svavar Guðason listmálara eru á sýningunni en eins og flestum er kunnugt er hann fæddur og uppalin á Hornafirði. Svavar komst í kynni við málaralistina á uppvaxtartímum sínum, mest fyrir tilstilli þeirra Bjarna Guðmundssonar á Höfn, Jóns Þorleifssonar í Hólum og Höskuldar Björnssonar listmálara. Jón Þorleifsson í Hólum á tvö verk á sýningunni og Höskuldur Björnsson á sex verk. Þeir eru báðir þekktir listamenn og hafa haldið margar málverkasýningar innan lands og utan.
Gígja Baldursdóttir listakona er Skaftfellingur að uppruna en faðir hennar er frá Reyðará í Lóni og móðir hennar frá Borg á Mýrum. Landið í Ríki Vatnajökuls hefur oft verið viðfangsefni hennar í myndlist og eitt verk eftir Gígju prýðir sýninguna. Sigurður Einarsson er mýramaður í húð og hár, en hann er ættaður frá Holtum og Einholti.
Sigurður gaf Menningarmiðstöð málverkasafn sitt, alls 298 verk árið 2005. Hann vildi vita af verkum sínum á viðkunnanlegum stað eftir sinn dag, en tvö verk eftir Sigurð eru á sýningunni.
Veggteppi saumað af Jarþrúði Pétursdóttir frá Kálfafellstað er á sýningunni en veggteppi þetta hefur hangið uppi á Byggðarsafni Austur – Skaftafellssýslu frá Upphafi þess.
Sýningin opnar klukkan 16:00 fimmtudaginn 26. Janúar og mun standa til 9. mars. Aðgangur er ókeypis og Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 8:30 til 12:00 og 13:00 til 15:30.


