Menningarverðlaun 2011
Í febrúar ár hvert fer fram afhending styrkja frá Sveitarfélaginu og á sama tíma eru afhent menningarverðlaun. Markmiðið með þessum verðlaunum er að vera hvatning til eflingar menningar og listastarfs í sveitarfélaginu.
Undanfarin ár hafa bæði einstaklingar og félagasamtök hlotið viðurkenninguna og ber listinn vitni metnaðarfullum verkefnum og starfi. Valið fer fram með þeim hætti að tilnefningar berast til atvinnu- og menningamálanefndar sem fer yfir þær og setur fram rökstuðning með niðurstöðu sinni. Verðlaunin eru í formi heiðursskjals sem formaður nefndarinnar undirritar og eru þau veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á nýliðnu ári. Allir þeir sem áhuga hafa á að tilnefna til verðlaunanna eru hvattir til þess að senda tilnefningu með stuttum rökstuðningi. Tillögur má senda í tölvupósti á bjorgerl@hornafjordur.is eða á skrifstofu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Litlubrú 2 780 Hornafjörður.
Handhafar Menningarverðlauna Austur-Skaftafellssýslu,
síðar Menningarverðlaun Hornafjarðar, frá upphafi eru:
Fyrir árið Handhafi: Veitt:
1994 Leikfélag Hornafjarðar 1995
1995 Karlakórinn Jökull 1996
1996 Magnús J. Magnússon 1997
1997 Arnþór Gunnarsson 1998
1998 Guðlaug Hestnes 1999
1999 Albert Eymundsson 2000
2000 Barnakór Hornafjarðar 2001
2001 Jóhann Morávek 2002
2002 Gláma-Kím, Árni Kjartansson 2003
2003 Haukur H. Þorvaldsson 2004
2004 Gísli Sverrir Árnason 2005
2005 Nemendafélag FAS 2006
2006 Hornfirska Skemmtifélagið 2007
Þórbergssetur, Þorbjörg Arnórsdóttir og
Fjölnir Torfason
2007 Jack D. Ives 2008
2008 Hermann Hansson 2009
2009 Kristín Laufey Jónsdóttir 2010
2010 Ragnar Arason 2011
og Þorsteinn Sigurbergsson



