Jólamarkaður í Nýheimum og Pakkhúsi
Árlegur jólamarkaður
Laugardaginn 3. desember verður árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Pakkhúsinu. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu árin og vafalaust verður engin breyting á því í nú.
Handverk, hönnun og matur úr Ríki Vatnajökuls verða áberandi á markaðnum eins og síðustu ár en einnig verður hægt að kaupa sér góðgæti á staðnum á borð við vöfflur og jólaglögg.
Markaðurinn verður með aðeins breyttu sniði í ár en matur úr Ríki Vatnajökuls verður í Pakkhúsinu og handverk, hönnun og nytjavara verður í Nýheimum.
Jólamarkaðurinn er kjörið tækifæri til að finna eitthvað í jólapakkann eða á veisluborðið og auðvitað til þess að koma sér í jólaskapið.
Markaðurinn hefst klukkan 10:00 og er til klukkan 16:00.



