Mósaík lampar og luktir til sýnis á Bókasafninu
Mósaík lampar og luktir eldri borgara hjá Dagvist aldraðra til sýnis á Bókasafni
Eldri borgarar sem sækja Dagvist aldraðra gerðu á dögunum lampa og luktir í mósaík stíl.
Alls eru laparnir níu talsins og luktirnar fjórar og eru þessir munir fagurlega skreyttir með marglitu gleri. Þeir listamenn sem eiga muni á sýningunni eru átta talsins og sýningin mun standa á Bókasafninu næstu tvær vikurnar.
Öllum velkomið að kíkja við og skoða lampana og auðvitað ná sér í góða bók í leiðinni.



