Menning
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Úr myndasafni

29.11.2011

Rithöfundakynning í Pakkhúsinu

Árleg rithöfundakynning í Pakkhúsinu

Árlegur upplestur rithöfunda verður í Pakkhúsinu í kvöld þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 20:00.

Alls eru átta rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta sinn og þeir eru Bryndís Björgvinsdóttir sem les úr bók sinni "Flugan sem stöðvaði stríðið", Ari Trausti Guðmundsson sem les úr bók sinni "Sálumessa", Sigríður Víðis Jónsdóttir úr bók sinni "Ríkisfang ekkert", Arnþór Gunnarsson úr bók sinni "Á afskekktum stað", Vigdís Grímsdóttir úr bók sinni "Trúir þú á töfra", Erla Hulda Halldórsdóttir úr bók sinni "Nútímans konur", Klauz Kretzer með ljósmyndabók sína "Íssýnir" og Soffía Auður Birgisdóttir sem les úr bókinni "Angantýr" eftir Elínu Thorarensen, en Soffía skrifaði eftirmála bókarinnar.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Piparkökur í boði og kaffi á boðstólum, ásamt tónlistaratriði frá Tónskólanum.

Rithöfundarnir verða svo á ferð um bæinn á miðvikudag og lesa fyrir grunnskólanemendur og heimsækja aldraða á hjúkrunarheimilið.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica