Lay Low tónleikar í Pakkhúsinu
Lay Low í Pakkhúsinu á föstudag
Lay Low er á ferð um landið með hljómsveit sinni og ætlar að halda tónleika í Pakkhúsinu föstudaginn 25. nóvember.
Ný plata hennar Brostinn strengur kom út núna á dögunum og er hún að fylgja henni eftir með tónleikum um allt land. Platan hefur fengið góðar viðtökur og eintóm lof gagnrýnenda.
Með lay Low í för er fríður hópur fólks og saman munu þau skapa frábæra stemmningu með því að spila á allskonar hljóðfæri og flytja lög af nýju plötunni af bestu list. Miðaverð á tónleikana er 2500 krónur og hægt er að kaupa miða í forsölu á www.laylow.is



