Menning
Elínborg Pálsdóttir
Verk eftir Elínborgu í Eigu Önnu Birnu dóttur hennar
Anna Birna Veggurinn minn

20.11.2011

Menningarmiðstöð leitar að verkum eftir Elínborgu Pálsdóttur

Fyrirhuguð sýning í Ráðhúsinu í desember

Fyrirhugað er að hafa sýningu á verkum Elínborgar Pálsdóttur í fremra rými Listasafns Hornafjarðar í desember. Elínborg hefur málað í um 30 ár og eiga margir Hornfirðingar verk eftir hana.

Það sem er einkennandi fyrir verk hennar er að þau eru oft máluð á rekavið eða tunnuspýtur og málar hún þá oft þær minningar sem tengjast staðnum þar sem hún fann efniviðinn upprunalega.

Þeir sem eiga verk eftir hana og eru tilbúnir til að lána þau á sýninguna mega hafa samband við Menningarmiðstöðina í síma 4708050 eða senda töluvupóst á Guðlaugu Ósk gudlaugp@hornafjordur.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica