Menning
Heimamarkaðurinn í Pakkhúsinu
Heimamarkaðurinn í Pakkhúsinu/Market
Að vanda er frábært úrval á markaðinum.
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

03.11.2011

Safnahelgi á suðurlandi helgina 4. til 6. nóvember

Dagskrá fyrir Hornafjörð

Safnahelgi á suðurlandi hefst á föstudaginn. Handverks og listafólk, veitingahús og söfn á öllu suðurlandi verða með ýmsa viðburði í gangi alla helgina. Dafskránna fyrir Hornafjörð má finna hér að neðan en hér að neðan má einnig finna hlekk inn á alla dagskrá sem í boði er á suðurlandinu.

Föstudagur 4. nóvember 


Kaffihornið | kl. 13 til 18 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Fjarlægð af landi Landslagsmyndir, allar málaðar í akríl.

Handraðinn við Vesturbraut | kl. 10 til 18 Handverk frá heimafólki til sölu. 


Laugardagur 5. nóvember 


Mikligarður við bryggjuna | kl. 13 til 18 Opin vinnustofa. Eyrún Axelsdóttir listakona sýnir sitt lítið af hverju, m.a. olíumyndir, vatnslitamyndir, kort úr endurunnum pappír og þæfð blóm og epli. Gott í gogginn og spjall.

Kaffihornið | kl. 13 til 18 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Fjarlægð af landi Landslagsmyndir, allar málaðar í akríl.

Hleinin í Pakkhúsinu | kl. 13 til 16 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Náttúra. Leikið sér með form úr náttúrunni og sett á striga

Nýheimar Prjónakaffi | kl. 13 til 15 Prjónakaffi á Bókasafninu og heitt á könnunni.

Kaffihornið kaffihús | kl. 13 til 16 Kaffihornið við Hafnarbraut. Kaffihlaðborð fyrir alla fjölskylduna Pakkhúsið við bryggjuna | kl. 13 til 16 Opið í heimamarkaðsbúðinni, sveitaverslun með matvöru úr héraði. Notaleg kaffihúsastemning

Handraðinn við Víkurbraut | kl. 11 til 16 Handverk frá heimafólki til sölu.


Sunnudagur 6. nóvember


Kaffihornið | kl. 13 til 18 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Fjarlægð af landi Landslagsmyndir, allar málaðar í akríl.

Handraðinn við Víkurbraut | kl. 13 til 16 Handverk frá heimafólki til sölu.


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica