Mugison í Pakkhúsinu sunnudaginn 6. nóvember
Mugison með tónleika í Pakkhúsinu
Mugison er okkur Hornfirðingum góðkunnur en hann hefur oft áður lagt ferð sína til Hafnar og spilað fyrir Hornfirðinga og sagt sögur af ferli sínum. Hann er að fylgja nýútkominni hljómplötu sinni eftir með tónleikaröð en platan ber heitið Haglél. Hann mun flytja lög af nýju plötunni, ásamt klassískum slagörum í Pakkhúsinu núna sunnudaginn 6. nóvember. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og hægt er að kaupa miða á www.mugison.is . Ef einhverjir miðar eru enn til á tónleikana verða þeir seldir við innganginn á sunnudagskvöld.



