Menning
Lindy--hop2
Lindy--hop2
Lindy Hop svingdans

12.10.2011

Dansnámskeið hjá Jóni Pétri frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru

Dansnámskeið í Sindrabæ

Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim og býður okkur upp í dans. Jón Pétur er okkur vel þekktur og hefur síðastliðin 3 ár kennt okkur að tjútta og mun halda áfram þar sem síðast var frá horfið.

Námskeiðið hefst á mánudagskvöld mun standa í fjóra daga til og með fimmtuddagskvöldi í Sindrabæ og byrjar klukkan 20:00. Námskeiðsgjaldið er 1000 krónur kvöldið eins og síðustu ár og engin kvöð að mæta á öll kvöldin.

Best er að hafa með sér dansfélaga í kennslunni þar sem að dansinn sem er kenndur er paradans. óþarfi er að skrá sig á námskeiðið en nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðlaugu hjá Menningarmiðstöðinni gudlaugp@hornafjordur.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica