Sýning á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum opnar í Listasafni
Ný sýning opnar í Listasafni klukkan 15:00 á laugardag
Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Listasafn, opnar sýningu á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum laugardaginn 15. október klukkan 15:00. Sýningin mun standa til 30. desember. Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 9 til 12 og 13 til 15:30 og er aðgangur að sýningunni ókeypis.
Jón Þorleifsson fæddist í Hólum árið 1891. Fljótlega kviknaði áhugi hans á að mála og 18 ára gamall hélt hann til Kaupmannahafnar til að hefja nám í málaralist við Teknisk Selskabs Skolen. 21 árs hélt hann svo fyrstu málverkasýninguna sína á Seyðisfirði og sama ár hóf hann nám í Académie de Croquis í París þar sem hann dvaldi í eitt ár. Næstu ár flakkaði hann svo á milli Danmerkur, Frakklands og Íslands þar sem hann málaði ýmist eða hélt málverkasýningar.
Eftir dvöl erlendis settist Jón að í Reykjavík, hann tók virkan þátt í félagsstarfi myndlistarmanna og starfaði um árabil sem gagnrýnandi Morgunblaðsins. Á meðal verka Jóns voru 33 metra langt málverk í New York og altaristafla úr Bjarnaneskirkju, sem sýnir fæðingu frelsarans, en það verk er á sýningunni.
Verkin sem eru á sýningunni eru flest í einkaeigu, en auk þeirra eru verk frá Listasafni Íslands og Sveitarfélaginu Hornafirði. Á sýningunni verður einnig hægt að skoða umfjöllun um Jón, gagnrýni hans og ritdeilur sem hann átti í við hina ýmsu listamenn.
Allir velkomnir


