Menning
Eyfi 50 tónleikaferð
Eyfi 50 tónleikaferð

06.10.2011

Eyfi 50 - tónleikar í Hafnarkirkju

Í kvöld heldur tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson „Eyfi“ tónleika í Hafnarkirkju og hefjast þeir kl.20. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð Eyfa sem hann heldur af tilefni 50 ára afmælis síns, en hann mun halda 50  tónleika víðsvegar um Ísland.

Ferðin hófst í Hveragerði þann 21. mars s.l.  Eyfi lék og söng á 25 tónleikum nú í vor sem leið og mun halda 25 tónleika með haustinu. Eyfi fer yfir ferilinn og spjallar á léttu nótunum við tónleikagesti , rifjar upp gamlar sögur úr bransanum og öll hans bestu lög ( Álfheiður Björk, Nína, Ég lifi í draumi, Kannski er ástin, Danska lagið, Góða ferð, Ástarævintýri (á Vetrarbraut), Dagar, Í brekkunni, Allt búið, o.m.fl. ) munu hljóma í ferðinni. Þetta er í fyrsta sinn, sem Eyfi fer tónleikaferð um landið í nokkuð langan tíma og er til efs að nokkur íslenskur tónlistarmaður hafi farið í svo viðamikla tónleikaferð eins og hófst í mars s.l. 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica