Ljósmynda - og hljóðsýningin "Hvítblinda"
Graðaloftið 5. ágúst til 10. ágúst
Myndlistarsýningin “Hvítblinda” er ljósmynd- og hljóðsýning á Graðaloftinu.
Hugmyndin bak við sýninguna er að tengja saman hljóð og mynd og reyna þannig að skapa kröftugt andrúmsloft kringum hverja mynd auk samhljóms meðal verka.
Sýningin fjallar um upplýsingar, upplýsingar í hljóði og mynd og hvernig þau tengjast saman.
Bilið á milli þess að vera eitthvað og vera ekki neitt. Bilið á milli þess að vera tónlist og vera hljóð.
Listamaðurinn að baki sýningunni er Hlynur Pálmason og Ásgeir Aðalsteinsson sér um hljóðið. “Hvítblinda er skuggalaus birta á alhvítum svæðum vegna endurkasts ljóss fram og aftur þannig að engan mun sér himins og jarðar.”
Sýningin er styrkt af Vinum Vatnajökuls, Menningarráði Suðurlands, Sveitarfélaginu Hornafirði og Skinney Þinganes.


