Fyrsta loftárás hérlendis var gerð á Hornafjörð 1942
Loftárás var gerð að á breskt stöðvarhús rétt innan við Höfn
Fyrsta loftárás Þjóðverja hér á landi var gerð við ræktunarlöndin skammt innan við Höfn en þar var bresk miðunarstöð. Þann 2. ágúst 1942 varpaði þýsk Focke Wulf FW-200 Condor könnunnar- og sprengjuflugvél tveimur sprengjum nærri stöðinni.
Önnur sprengjan sprakk og náði að laska húsið sem hýsti stöðina en hún var þó starfræk áfram. Eftir að sprengjan sprakk lét flugvélin vélbyssukúlur rigna yfir braggahverfið vestan við stöðina en ekki hlaust mannskaði af. (Heimild: Saga Hafnar í Hornafirði, síðara bindi).
Rétt tæpum 69 árum síðar fór Björn G. Arnarson safnvörður á Menningarmiðstöð Hornafjarðar ásamt Sigurði M. Grétarssyni starfsmanni fornleifavernda að staðnum sem sprengjan sprakk. Fundu þeir nokkur sprengjubrot sem Björn er nú með í sinni vörslu ásamt því að finna leifar eftir stöðvarhúsið og möstur sem stóðu þar nærri.
Fyrirhugað er að koma upp upplýsingaskiltum við staðinn en þetta er merkur viðburður í sögu Íslands.



