Ferð í Kúabúið í Flatey og heyskapur við Gömlubúð
Barnastarf Menningarmiðstöðvar fór í Flatey og í heyskap
Á þriðjudag í síðustu viku fóru 18 krakkar og tveir starfsmenn Menningarmiðstöðvar í heimsókn í kúabúið í Flatey. Kristín Egilsdóttir tók á móti hópnum og skoðað var búið hátt og lágt. Í kúabúinu eru róbótar sem sjá um að mjólka beljurnar og ganga þær síðan um frjálsar. Mikið var af litlum kálfum í Flatey og það var meira að segja einn nýborinn kálfur og vakt hann mikla kátínu meðal krakkanna. Nestið var síðan snætt á planinu við kúabúið og síðan var lagt stað heim á leið með smá stoppi í Eskey þar sem krakkarnir fengur að viðra sig og hlaupa aðeins um. Í gær þriðjudag var heyskapur við Gömlubúð. Tólf krakkar mættu við Gömlubúð og var það Björn G. Arnarson safnvörður sem sýndu krökkunum handbrögðin við heyskap fyrr á öldum. Fyrst var þeim kennt að slá og svo var farið í það að þurrka heyið og þurfti að flytja heyið á milli og svo var farið í það að rúlla því upp í heyrúllur. Nestið var snætt inní Gömlubúð áður en haldið var af stað aftur út og farið í leiki.


