Tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju með K.K
Miðvikudagskvöldið 27. júlí kl 20:30
Samverustundin er tengd gömlum sögnum tengdum Ólafi helga Noregskonungi en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað.
Rifjuð er upp gömul þjóðsaga um völvuna á Kálfafellsstað sem var systir Ólafs helga og sagan um líkneski af ‘Olafi helga sem gefið var til kirkjunnar upp úr aldamótunum 1700. til að hnekkja álögum völvunnar á staðnum Líkneskið er varðveitt í Þjóðminjasafninu. Lesin er frásaga Kristjáns Eldjárns af líkneskinu , síðan er K.K með tónleika eins og honum er einum lagið.. Á eftir er farið í heimsókn að Völvuleiðinu við Hellakletta og Fjölnir Torfason á Hala segir frá gömlum sögum er tengjast staðnum og sýnir áþreifanlega muni frá Kálfafellsstað sem varðveist hafa og sanna mátt völvunnar.og áhrif hennar á lífið í Suðursveit allt fram á okkar daga
Dagskráin er eftirfarandi:
Ávarp
Séra Halldór Reynisson starfandi sóknarprestur
Upplestur
Völvan á Kálfafellstað Þorbjörg Arnórsdóttir
Tónleikar
K.K eins og honum er einum lagið
Kvöldganga
Heimsókn að Völvuleiði, Fjölnir Torfason segir frá
Allir velkomnir
Þórbergssetur og Kálfafellsstaðarkirkja



