Munum úr Gömlubúð pakkað niður
Gamlabúð að flytja
Starfsmenn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar með Björn Arnarson í fararbroddi eru farnir að huga að flutningum Gömlubúðar.
Samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Hornafjarðar að flytja skuli Gömlubúð aftur á sinn upprunalega stað og verða hluti að verkefninu Hafnarvík-Heppa. Upphaflega var Gamlabúð byggð sem verslunarhús á Papósi í Lóni árið 1864 en var flutt til Hafnar á upphafsárum byggðar þar, 1897. Húsið gegndi hlutverki verslunarhúss í 80 ár eða þar til það var flutt á núverandi stað árið 1977. Frá því Gamlabúð var flutt á núverandi stað árið 1977 hefur umræða um flutning annað slagið komið upp.
Eins og fyrr segir eru safnverðir byggðasafnsins farnir að skrá muni niður, pakka og flytja þá í geymslu, en það eru munir sem eru á háalofti Gömlubúðar.
Safnið verður áfram opið með óbreyttum hætti en í vetur verður farið í flutning safnsins og hússins.
Fyrirhugað er að halda kveðjudag við Gömlubúð 27. ágúst nk. en þar á að kveðja húsið með stæl. Nánar auglýst þegar nær dregur.



