Menning
Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta

14.07.2011

Leikhópurinn Lotta sýnir í dag á Hóteltúninu

Leikritið Mjallhvít á hóteltúninu í dag klukkan 18

Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö á túninu hjá Hótel Höfn fimmtudaginn 14. júlí. klukkan 18.

Þetta er fimmta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.

Miðaverð á sýninguna er einungis 1.500 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn.

Sýningin er um klukkustund að lengd, gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra og um að gera að taka með sér teppi til að sitja á. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu.


Góða skemmtun

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica