Menning
Hlynur Pálma 1
Hlynur Pálma 1
Hlynur Pálma með sýningu 2011
Mynd 1 af 2
1 2

13.07.2011

Hlynur Pálmason með tvær sýningar í Nýheimum

Hlynur Pálmason með sýningar í Nýheimum

Hornfirðingurinn Hlynur Pálmason verður með tvær sýningar í Nýheimum í þessari viku. Myndirnar sem hann sýnir eru kvikmyndir sem hann gerði í danska kvikmyndaskólanum sem hann stundar nú nám við en hann hefur nú lokið tveimur árum í skólanum af fjórum. Einnig mun hann sýna önnur verkefni úr skólanum.

Sýningarnar verða fimmtudaginn 14. júlí og föstudaginn 15. júlí frá kl 17:00-18:00.

Myndirnar á sýningunni eru á dönsku með enskum texta og er verðið á sýninguna 1.000 kr.

Önnur verkefni sem Hlynur er að vinna að þessa dagana er ljósmynda- og hljóðsýning sem hann fyrirhugar að opna í byrjun ágústmánaðar. Vinur hans úr skólanum, Ásgeir Aðalsteinsson, mun sjá um hljóðvinnslu sýningarinnar.


Allir velkomnir á sýninguna.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica