Menning
Víkingaþorp 2011 1
Víkingaþorp 2011 1
Barnastarfið í víkingaþorpinu
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

13.07.2011

Víkingþorpið skoðað með Barnastarfi

Víkingaþorpið að Horni

Í gær þriðjudag fóru 10 hressir krakkar í ferð með barnastarfinu að Víkingaþorpinu á Horni. Fyrst var þorpið skoðað og ekki leið á löngu þar til krakkarnir fóru að dýfa tánum ofaní lækinn og vaða svo yfir hann litlu seinna. Þegar allar tær voru orðnar kaldar var nestið snætt og svo skelltu krakkarnir sér í hlutverkaleik en mikill hamagangur var þegar verið var að klófesta þjófana og koma þeim fyrir í dýflissunni.

Veðrið lék við okkur, sól og gott en hafgolan lét vita af sér öðru hvoru.

Komið var til baka að bókasafninu rétt fyrir 16 eftir mjög góða ferð í Víkingaþorpið.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica