Barnastarf Menningarmiðstöðvar - Pottarnir í Hoffelli
Pottarnir í Hoffelli
Þriðjudaginn 21. júní fór 14 krakkar saman ásamt starfsmönnum menningarmiðstöðvarinnar í heitu pottana í Hoffelli.
Lagt var af stað frá bókasafninu kl 13 á Sindrarútunni og komið var inní Hoffell skömmu síðar og ekki leið á löngu þar til fyrstu krakkarnir voru komin ofan í pottana.
Eftir dágóðan stund og mikið spjall var drifið sig uppúr pottunum og fundinn flottur staður í nágrenninu til að borða nestið sitt að heiman.
Flottur dagur og á þriðjudaginn næstu viku verður farið í fjöruferð. Hægt er að sjá fleiri myndir úr ferðinni inná Facebook síðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar



