Lifandi Safn í Gömlubúð í sumar
Gamlabúð lifnar við í sumar
í sumar mun Gamlabúð lifna við en þar verður boðið upp á ýmsa viðburði sem tengjast lifnaðarháttum fyrri tíma.
Við ætlum að byrja á þjóðbúningadegi á þjóðhátíðardaginn sjálfann þann 17. júní en hann er haldin í samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga.
Dagurinn hefst klukkan 16:00 og boðið verður upp á kaffi, kleinur og flatkökur við dillandi harmonikuspil. Þeir einstaklingar sem eiga þjóðbúninga eru sérstaklega hvattir til að mæta í þeim, hverrar þjóðar sem þeir eru. Þjóðbúningadagurinn er partur af Lifandi Safni Gömlubúðar í sumar en einnig verður boðið upp á eftirfarandi:
Sláttardag í júlí
Töðugjöld í ágúst
Verbúðalíf í september



