Menning
óvissuferð
Óvissuferð
Óvissuferð Barnastarfsins
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

10.06.2011

Barnastarf Menningarmiðstöðvar sumarið 2011

barnastarfið hefst á fuglaskoðunarferð 14. júní

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er að hefjast. Fyrsta ferð sumarsins er fuglaskoðunarferð en nú er varpið á fullu í Óslandinu og nóg af litlum ungum til að skoða.

Það verður svo nóg um að vera hjá okkur í sumar en við förum í 9 ólíkar ferðir út um alla sýsluna. Börn frá sjö ára aldri geta komið með í ferðirnar og skráning í þær er á Bókasafninu eða í síma 470-8050. Mikilvægt er að klæða sig ávalt eftir veðri og hafa með sér nesti.

Verðir hefur haldist óbreytt ár frá ári eða 500 krónur og mun kosta það áfram. Allar ferðirnar eru á þriðjudögum klukkan 13:00 og við látum vita með fyrirvara hvar á að hittast ef ekki við Nýheima.

Allar ferðirnar eru auglýstar á Skjávarpinu og einnig er hægt að sjá myndir og umfjöllun um þær á www.rikivatnajokuls.is/menning

Umsjónamaður barnastarfsins í sumar er Guðlaug Ósk. Vonandi sjáum við ykkur sem flest og hér að neðan er hægt að sjá yfirlit yfir allar ferðirnar:

14. júní Fuglaskoðunarferð

21. júní Pottarnir í Hoffelli

28. júní Fjöruferð

5. júlí Heimsókn á kúabúið í Flatey

12. júlí Víkingaþorpið á Horni skoðað

19. júlí Lúruveiði

26. júlí heyskapur

2. ágúst Töðugjöld

9. ágúst Óvissuferð

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica