Gingó opnar málverkasýningu í Skaftafelli.
Guðrún Ingólfsdóttir (Gingó) opnar sýningu í Skaftafelli laugardaginn 11. jún. kl 17.00.
Sýningin heitir " Fjarlægðir" og gefur að líta 17 verk sem listakonan hefur unnið að síðustu misseri.
Verkin hafa öll sterka skírskotun til náttúrunnar og upplifunar einstaklingsins á umhverfi okkar í ljósi og litum um leið og hugarflæðið fær að njóta sín. Verkin eru akrílverk á striga og eru málið 2011. Sýningin endurspeglar það lifandi landslag sem umlykur íbúa Hornafjarðar, margbreytileika og endalausar litafléttur í fjarlægðinni. Einnig er Gingó með opna sýningu á Kaffi Horninu eins og undanfarin ár og gefur þar að líta ný verk sem sett voru upp í maí 2011.
Samstarfsaðilar Gingó að þessum sýningum eru: Vatnajökulsþjóðgarður-Skaftafelli, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Listasafn, Kaffi Hornið á Höfn.



