Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

20.05.2011

Á slóðum bókanna

Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 28. - 29 maí næstkomandi.

Markmið með málþinginu er að vekja athygli á því hvernig hægt er að gera bókmenntaarfinn og nútímabókmenntir að aflvaka nýrra tækifæra í ferðaþjónustu á Íslandi.

Á þinginu fer fram samræða á milli forystumanna í samtökum ferðaþjónustu, rekstraraðila í ferðaþjónustu, menningarfræðinga, rithöfunda, leikara og bókmenntafræðinga. Einnig  koma þýskir blaðamenn í  heimsókn en þeir eru á Íslandi á vegum Sagenhaftes verkefnisins og eru að kynna Ísland vegna bókamessunnar í Frankfurt í október 2011.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma í vorið í Suðursveit eina helgi og taka þátt í skemmtilegri dagskrá þar sem  persónur sagnanna  birtast ljóslifandi og náttúruskoðun fær á sig skáldsagnakenndan blæ.

 

Dagskrá

Laugardaginn 28. maí .
16:00 Málþingið sett
16:15 Ávarp;  Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
16:30 Bókmenntir á aðventu: Skúli Björn Gunnarsson Gunnarsstofnun
17: 00 Hallveig og konurnar á Sturlungaöld: Margrét Ákadóttir leikkona
17:30 Umræður,
18:00 Kvöldverður
19:30 Dagskrá á ensku með þátttöku þýskra blaðamanna: Pétur Gunnarsson kynnir Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og sín verk. Umræður og kvöldstund með áhugafólki um bókmenntir og ferðaþjónustu
.

 

Sunnudaginn 29. maí
9:00    Morgunhressing og morgunganga meðal steinanna, sem tala.
10:15 Á slóðum Guðríðar og Hallgríms: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur
10:45 Orðsins list: Saga og sögur; Guðrún Helgadóttir Háskólanum á Hólum
11:15 Veruleiki  skáldskaparins;.  Soffía Auður Birgisdóttir Háskólasetur Hornafjarðar
11:45 Að búa í heimi skáldævisögunnar; Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetur
12:10 Umræður
12:40 Hádegisverður og málþingslok

 

Málþingsgjald er  kr 6000, innifalið kaffi, kvöldverður og hádegisverður
Bókanir á netfangið hali@hali.is og bjornborg@gerdi.is

ALLIR VELKOMNIR 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica