Prjónagjafir til styrktar Japan
Lagðar af stað
Þann 28. apríl síðastliðinn sendi Menningarmiðstöð Hornafjarðar frá sér 6 kassa af ullarfatnaði til Japan. Átakið prjónað til styrktar Japan er búið að vera í gangi á Bókasafninu frá því þann 7. apríl síðastliðinn og hafa margir einstaklingar tekið þátt í átakinu, ásamt Liðveislu fatlaðra og Dagvist aldraðra og langar okkur að þakka sérstaklega fyrir það. Margir lögðu leið sína á safnið og prjónuðu, en einnig gáfu margir lopa og ullarfatnað sem þeir áttu til.
Rúmt hálft tonn af ullarfatnaði verður svo sent til Japan frá Íslandi á næstunni þar sem að landssöfnun hefur verið í gangi síðasta mánuðinn. Þrjár japanskar konur sem búa hér á landi hófu söfnunina en það eru þær Miyako Þórðarson, Yoko Arai og Yayoi Shimomura. Þær vildu gera eitthvað til að hjálpa löndum sínum vegna jarðskjálftans og flóðanna sem áttu sér stað í Japan í mars og þessi söfnun er afraksturinn.Pósturinn mun svo sjá um að senda ullarfatnaðinn til Japan endurgjaldslaust.



