Menning
Veggurinn minn
Veggurinn minn
Friðrik Jónsson
Mynd 1 af 3
1 2 3

04.05.2011

Ágústína Halldórsdóttir á vegginn minn á Bókasafninu

Veggurinn er tileinkaður Friðriki Jónssyni tengdaföður Ágústínu

Mig langar að tileinka tengdaföður mínum vegginn þessa vikuna. Hann heitir Friðrik Jónsson og hefur hann verið að mála til margra ára.

Eftir að hann hætti að vinna, um sjötugt, fór hann í myndlistarskóla en hann hafði alltaf haft áhuga á að teikna og mála. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar og einnig verið með í þó nokkrum samsýningum.

Þessar myndir sem hanga á veggnum eru héðan úr umhverfinu. Þær eru unnar með olíu og vatnslitum. Þegar hann hefur verið í heimsókn hjá okkur þá hefur hann oft látið sig hverfa með teikniblokkina, blýantinn og myndavélina og fundið sér fallegt landslag ( mótíf ) og rissað upp eða tekið myndir.

Hann verður níræður í sumar og er enn að og langar mig að leyfa Hornfirðingum að njóta myndanna hans.

Ágústína Halldórsdóttir

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica