Menning
Ásdís Marteinsdóttir, bókavörður
Ásdís Marteinsdóttir, bókavörður

25.11.2003

Jöfn og sígandi aukning

Aðsókn að bókasafninu hér hefur vaxið í hverjum mánuði miðað við síðasta ár og voru útlán 1.nóvember sl. 26.194, en voru 24.685 1.nóv. á síðasta ári segir Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Þetta hefur verið jöfn og sígandi aukning, börn og unglingar sækja mun meira í safnið en áður og teljum við það ekki síst því að þakka að í haust tókum við upp formlegt samstarf við grunnskólana hér á staðnum.

Þetta samstarf er þannig að krakkarnir koma reglulega í heimsóknir nokkrum sinnum í hverjum mánuði, og þá hafa þau fengið kennslu hér og leiðbeiningar um hvernig hægt er á svo margan hátt að nýta sér svona safn.
Þetta hefur haft þau áhrif að krakkarnir eru mikið meira að koma hingað í sínum frítíma og þau nýta sér gögn af safninu í sambandi við námið. Með þessu læra þau líka að nýta sér safnið sem afþreyingarmiðil segir Gísli.
Hvað varðar lestur sögubóka virðist hann alltaf detta út á tímabili hjá unglingum, þegar þau eru á aldrinum 12-16 ára, svo þegar komið er í framhaldsskóla fara þau að skila sér inn á safnið aftur.

Í byrjun desember verður rithöfundakynning í Pakkhúsinu þar sem rithöfundarnir Guðmundur Andri Thorson, Guðmundur Steingrímsson, Silja Aðalsteinsdóttir, Sjón og Vigdís Grímsdóttir lesa upp úr bókum sínum. Einnig mun Gunnþóra Gunnarsdóttir lesa upp úr Félagsvininum. Menningarmiðstöðin og Hótel Höfn standa fyrir jass tónleikum 26.nóv. Mjög góð aðsókn hefur verið að þeim menningarviðburðum sem verið hafa í þessum mánuði á vegum Menningarmiðstöðvarinnar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica