Átakið prjónað til styrktar Japan heldur áfram á Bókasafninu
Áfram prjónað
Þann 7. apríl síðastliðinn var haldin prjónadagur á Bókasafninu, en tilgangurinn með honum er sá að senda hlýjan prjónafatnað til Japan, en þar er mjög kalt á nóttunni.
Dagurinn gékk vel og var prjónað til lokunar Bókasafnsins klukkan 17:00. Einnig komu margir með prjónafatnað á safnið til að gefa og mun pósturinn sjá um að senda þessar gjafir út til Japan í apríl, endurgjaldslaust.
Menningarmiðstöðin hefur ákveðið að halda áfram þessu átaki til 28. apríl svo að áfram verður hægt að koma og prjóna á Bókasafninu frá klukkan 9:00 til 17:00 alla virka daga, og við minnum á að hægt er að nálgast prjóna, garn og uppskriftir á staðnum. Einnig tökum við áfram við prjónafatnaði.
Heitt er á könnunni allan daginn og við vonumst til að sjá sem flesta með prjónana á lofti.



