Þórey Sigfúsdóttir og Björn Kristjánsson eiga vegginn á Bókasafninu
Veggurinn minn
Myndirnar sem prýða vegginn að þessu sinni eru í eigu þeirra Þóreyjar Sigfúsdóttir og Björns Kristjánssonar.
Myndirnar eru í miklu uppáhaldi hjá þeim og eru þrjár talsins. Allar eru þær eftir dóttir Þóreyjar, Hönnu Hlíf Bjarnardóttir. Myndirnar eru allar mjög ólíkar og eru ýmist, málaðar, saumaðar út eða þrykktar.
Sjóndeildarhringur nefnist olíumálverkið og var jólagjöf til þeirra hjóna. Drottinn blessi heimilið er nafnið á þrykk mynd sem Björn fékk í 70 ára afmælisgjöf og Bænin er verk gert með krossaum og perlum. Verkin munu prýða vegginn næstu tvær vikurnar.


