Norðurljósablús 2011
Sjötta Blúshátíðin að ganga í garð
Þann 4. til 6. mars næstkomandi verður sjötta Norðurljósablúshátíðin haldin á Hornafirði en fyrsta helgin í mars hefur fest sig í sessi sem blúshátíðarhelgi frá upphafi.
Eins og áður er það Hornfirska Skemmtifélagið sem sér um skipulagningu hátíðarinnar. Í ár verður lögð megináhersla á hornfirskar hljómsveitir og brottflutta hornfirðinga í tónlistarlífinu, enda er á nógu þar að taka.
Hljómsveitirnar sem koma fram á hátíðinni í ár eru átta talsins og munu blúsa á Hótel Höfn, Kaffihorninu og Víkinni föstudag og laugardag. Upplýsingar um hverja hljómsveit fyrir sig er að finna í síðasta tölublaði Eystrahorns.
Blúsdjamm verður í Nýheimum á laugardag þar sem allir geta komið og tekið í hljóðfærin og spilað blús. Á sunnudaginn verður svo blúsmessa í Hafnarkirkju.
Frítt hefur verið inn á hátíðina frá árinu 2009 og á því verður engin breyting í ár. Blúsbolirnir eru komnir í Nettó og verða þar til sölu alla vikuna og kosta 1500 krónur. Dagskrá Blúshátíðar verður dreift á opinbera staði bæjarins svo allir geta gripið með sér eintak en hana er einnig að finna hér að neðan.



