Anna Guðlaug Albertsdóttir á vegginn að þessu sinni
Veggurinn minn
Önnu Guðlaugu langaði til þess að sýna tvær myndir sem faðir hennar gerði handa henni og munu hanga á vegg Bókasafnsins næstu tvær vikurnar. Faðir Önnu hét Albert Jóhannsson og var kennari við Héraðsskólann að Skógum undir Eyjafjöllum.
Önnur myndin er máluð á rekaviðarfjöl sem Anna Guðlaug fann á Skógarfjöru og hún er máluð með vaxlitun.
Hina myndina gaf faðir Önnu Guðlaugar henni eftir að hún flutti hingað austur á Hornafjörð og er hún af Þvottárskriðum og máluð með vatnslitum.



