Menning
Unglur
Uglur
Uglur - Soffía Auður
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

18.01.2011

Uglusafn Soffíu Auðar

Til sýnis á Bókasafninu

Soffía Auður er hrifin af uglum því þær eru tákn visku og þekkingar. Nafnið hennar kemur úr grísku og merkir viska (sophia), svo þarna eru skemmtileg tengsl.

Reyndar á uglan sér einnig dekkri hliðar í táknmerkingu; hún var talin vera fylginautur norna og þá tengd leyndardómum, nóttinni, óttanum og dauðanum. Uglan hefur líka verið tengd við grísku gyðjuna Aþenu, sem er bæði gyðja lærdóms og hernaðar. Soffía kann vel við þessa tvíræðu merkingu uglunnar. Það var ekki meðvituð ákvörðun hjá Soffíu að safna uglum, heldur kom það nokkurn veginn af sjálfu sér. Flest allar uglurnar hefur hún þegið að gjöf. Þá fyrstu ugluna fékk hún í gjöf frá einum sona minna og síðan hafa margir orðið til að bæta í safnið hennar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica