Veggurinn minn
Valgerður Sigurðardóttir á vegginn á Bókasafninu
Þessar þrjár myndir sem hérna sjást eru sýnishorn af tómstundagamni Valgerðar Sigurðardóttir á liðnum árum. Þær eru málaðar með acryl litum. Sú elsta er af lundapari við inngang að hreiðrinu. Á hinum tveim er litið til Vatnajökuls með skriðjökla sína sem skreyta fjallahringinn ásamt vaxandi gróðri sem speglast í tjörnum þar sem álftir og fleiri fuglategundir una sér. Allt er þetta heillandi og þakkarefni að hafa fengið að sjá og njóta.



