Menning
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Úr myndasafni

08.12.2010

Upplestur rithöfunda í Pakkhúsi

Hinn árlegi upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu verður á morgun fimmtudaginn 9. desember kl. 20:00.

Í ár  fáum við  4  gesti  en þeir eru Kristín Steinsdóttir  sem  les úr bók sinni Ljósa, Steinunn Jóhannesdóttir sem les úr bók sinni Heimanfylgja, Ófeigur Sigurðarson með bók sína Jón og Gunnar Eyjólfsson með ævisögu sína  Alvara leiksins, auk þeirra verður lesið úr bókum Þorsteins Jóhannessonar Undir breðans fjöllum og ljóðabók Sigurjóns Jónssonar  Jörðin kallar á börnin sín.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.  Kaffi og piparkökur í boði

Rithöfundarnir verða svo á ferð um bæinn á föstudag og lesa fyrir grunnskólanemendur og heimsækja aldraða á Hjúkrunarheimilið.

 

Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Listvinasjóður

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica