Gísli Eysteinn Aðalsteinsson og Ragnar Arason með sýningu í Nýheimum
Hornfirðingar að verki - yfirlitssýning á teikningum Gísla Eysteins og útskurði Ragnars Arasonar í Nýheimum
Mðvikudaginn 1. desember opnaði sýning í Nýheimum sem nefnist Hornfirðingar að verki og er yfirlitssýning yfir handverk og teikningar þeirra Ragnars Arasonar og Gísla Eysteins Aðalsteinssonar og verður sýningin opin út desember og er þetta sölusýning.
Ragnar Arason hefur lengi stundað rennismíði. Hann hefur munina sína til sölu í Handraðanum en hann hefur einnig farið með handverkið sitt á hina árlegu handverkssýningu á Hrafnagili í Eyjafirði síðustu 10 árin en sýningin er góður vettvangur til að koma sér á framfæri. Ragnar vinnur mest út íslenskum viði á borð við birki, reynivið, gullregn og ösp. Mest rennir hann af skálum, eggjabikurum, eftirlíkingum af mjólkurbrúsum, mjólkurfötum og strokkum. Sömuleiðis töluvert af pennum og taflmönnum. Ragnar hlaut þann heiður að vera valinn handversmaður ársins árið 2010 á Handverkssýningunni á Hrafnagili.
Gísli Eysteinn Aðalsteinsson hefur haft áhuga á teikningum frá því að hann var barn. Hann hefur teiknar mikið frá því að hann þurfti að hætta að vinna árið 1987 vegna veikinda. Mikið af myndefni Gísla kemur frá honum sjálfum þar sem hann hefur ekki tök á að vera mikið utandyra. Hann teiknar einnig eftir ljósmyndum en Sigurður Eymundsson vinur Gísla hefur fært honum margar góðar ljósmyndir sem hann hefur teiknað eftir. Aðal myndefni Gísla eru Hús, landslag og fuglar og þá aðallega Rjúpur. Gísli hefur myndirnar sínar til sölu á facebook, netslóðin á sölusíðu Gísla er facebook/Sölusíða Gísla Eysteins Aðalsteinssonar. Verðin á myndunum fara eftir stærð þeirra en þær eru í þremur mismunandi stærðum. Gísli Eysteinn var tilnefndur til Menningarverðlauna árið 2009 fyrir blýantsteikningar sínar.
Við hvetjum alla til að líta við á sýningunni í Nýheimum sem er opin alla virka daga frá klukkan 9:00 til 17:00 og fyrsta og þriðja hvern laugardag í desember. Starfsfólk Menningarmiðstöðvar



