Verkefnið Evrópa Unga Fólksins hefst um helgina, vilt þú vera með?
Fyrsta námskeiðið í Evrópu Unga Fólksins verður um helgina og svo einnig um næstu helgi.
Markmið verkefnisins Evrópa Unga fólksins er að efla þáttöku ungs fólks á Hornafirði, á aldrinum 13 - 30 ára í samfélagsmótun, umræðum og ákvörðunum sem hafa áhrif á þennan aldurshóp sérstaklega. Ætlunin er að skapa umgjörð um aðkomu ungs fólks að mótun samfélagsins og þeim leiðum sem færar eru til þess að þessi hópur geti átt í beinu sambandi við kjörna fulltúa. þessi hugmynd setur ekki einungis kröfur á þennan skilgreinda hóp heldur einnig á stjórnskipulag bæjarins og stjórnendur þess.
Í hnotskurn snýst þetta verkefni um að efla sjálfstraust sitt, geta tekið þátt í umræðum um stöðu mála og getu til að hafa áhrif á samfélagið, stjórnendur og svo framvegis. Hugmyndafræðin er sú að læra með því að framkvæma, samvinnu innan hópsins og getu manns til að hafa áhrif.
Þetta ætti að vera skemmtilegt, nytsamlegt og fræðandi en samt mest skemmtilegt :)
Þeir sem hafa áhuga á að vera með í verkefninu geta sent tölvupóst á gudlaugp@hornafjordur.is eða hringt í síma 4708057 og skráð sig.



