Menning
David-White
David-White
Verk eftir David White
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

11.11.2010

Yfirlitssýning á verkum David White í Nýheimum

David White

Yfirlitssýning á verkum David White stendur nú yfir í Nýheimum. Hann bjó á Hornafirði fyrir um 17 árum síðan og málaði fjöldann allan af málverkum á meðan á dvöl hans stóð.

Verkin gaf hann svo vinum og kunningjum og eiga því margir Hornfirðingar listaverk eftir hann. Í byrjun hausts auglýsti svo Menningarmiðstöð Hornafjarðar eftir verkum í einkaeigu eftir David þar sem ákveðið hafði verið að halda sýningu í Nýheimum á þeim fjölmörgu listaverkum sem hann skildi eftir sig hér.

Margar myndir skiluðu sér inn, en hápunktur undirbúningsins var sá að David ákvað að koma til landsins í tilefni af sýningunni, en hann hefur ekki komið til Íslands síðan árið 1993. Hann tók með sér þónokkur verk sem hann hefur unnið að í gegnum tíðina og eru þau til sölu.

Sýningin er í miðrými Nýheima út nóvembermánuð og er opin alla virka daga frá klukkan 9:00 til 17:00. Laugardaginn 20. nóvember verður sýningin opin frá klukkan 10:00 til 16:00. Allir eru velkomnir.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica