Evrópa unga fólksins
Nú styttist í að verkefnið Ungmenni Hornafjarðar, sem styrkt er af Evrópu unga fólksins, hefjist af fullum krafti. Á föstudag verður kynningarfundur í Nýheimum þar sem verkefnið verður kynnt og þátttakendur skráðir. Markmið verkefnisins er að efla þátttöku ungs fólks á Hornafirði, á aldrinum 13-30 ára í samfélagsmótun, umræðum og ákvörðunum sem hafa áhrif á aldurshópinn sérstaklega. Ætlunin er að skapa umgjörð um aðkomu ungs fólks að mótun samfélagsins og þeim leiðum sem færar eru til þess að þessi hópur geti átt í beinu sambandi við kjörna fulltrúa. Leynileikhúsið kemur til með að verða okkur innan handar og halda utanum verkefnið og verður fyrsta helgin 20. og 21. nóvember. Leynileikhúsið hefur starfað með fjölmörgum skólum að forvarnarverkefnum en með þessu verkefni halda þau á nýjar brautir enda verkefnið nýlunda í styrkingu og eflingu þessa aldurshóps til þátttöku í samfélagsmótun. Eftir áramótin verður haldið íbúaþing á Hornafirði og gera má ráð fyrir að þátttakendur í verkefninu fjölmenni á þann fund og komi skoðunum sinna aldurshópa skilmerkilega til þeirra sem leiða stjórnun og mótun samfélagsins á Hornafirði. Ungt fólk á aldrinum 13-30 ára er sérstaklega velkomið á föstudaginn en aðrir þeir sem áhuga hafa á opinni umræðu um framtíðina eru einnig hjartanlega velkomnir.
Starfsmenn Menningarmiðstöðvar


