Menning
Norræn Bókasafnavika
Norræn Bókasafnavika
Norræn Bókasafnavika 2010

10.11.2010

Norræn Bókasafnavika

Norræn Bókasafnavika á Bókasafninu

Norræn bókasafnavika Þann 8. nóvember 2010 hófst Norræna bókasafnsvikan í fjórtánda skiptið og þemað í ár er ”Töfraheimar Norðursins”. Vikan er haldin með það fyrir augum að gæða norrænu sagnahefðina nýju lífi. Þetta er vika hlaðin upplestrum, sýningum, rökræðum og alls kyns menningaratburðum á Bókasafninu og Grunnskólanum á Höfn og auðvitað allstaðar á Íslandi og á öllum Norðurlöndunum, ásamt Eystrasaltsríkjunum. Markmiðið með vikunni er að kynna norræna menningu og sérstaklega norrænar bókmenntir. Setning vikunnar er einstök, þar sem slökkt er á öllum rafmagnsljósum, kveikt á vasaljósum og lesnar draugasögur fyrir börnin. Ef fólk ætlar að fá lánaðar bækur á bókasafninu á meðan á vikunni stendur verður það einnig að fá lánað vasaljós svo það rati um Bókasafnið sem hefur breyst í dulda heima norðursins.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica