Lið hornafjarðar mætir Norðurþingi í Útsvari
Útsvar
Lið Hornfirðinga keppir við Norðurþing í Útsvari á morgun föstudaginn 22. október í fyrstu umferð. Feðgarnir Þorsteinn Sigfússon og Þorvaldur Þorsteinsson mæta aftur í sjónvarpssal fyrir hönd Hornafjarðar en í ár hefur nýr maður gengið til liðs við þá feðga en það er Jón Eiríksson. Er þetta í annað skipti sem þeir feðgar taka þátt í Útsvari en þeir tóku þátt í fyrra ásamt Emblu Grétarsdóttir og komust í aðra umferð. Ætla þeir félagar sér alla leið. Sýnum stuðning okkar í verki og hvetjum þá á toppinn.



