Dansnámskeið fyrir alla frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru
Dansnámskeið í Sindrabæ
Jón Pétur hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim í næstu viku og býður okkur upp á dansnámskeiðið sitt vinsæla. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa sótt námskeið hjá honum áður, bæði til að rifja upp dansa og læra nýja, en einnig fyrir nýliða til að læra ný spor. Danskvöldin verða 3 talsins dagana 19. 20. og 21. október og hefjast öll klukkan 20:00 til klukkan 21:30 og eru í Sindrabæ. Stakir geta komið og lært spor og dansarar á öllum stigum í dansi geta nýtt sér kennsluna hvort sem það eru byrjendur eða lengra komnir. Ekki er nauðsynlegt að mæta á öll danskvöldin heldur ræður fólk hvort það komi á eitt kvöld eða öll. Kvöldið kostar 1000 krónur á manninn. Nýtið þetta frábæra tækifæri og lærið að dansa!



