Menning
Týgrisdýr
Týgrisdýr
Felicity og Michael Bullock - Týgrisdýr
Mynd 2 af 2
1 2

06.10.2010

Ljósmyndasýning í Miðrými Nýheima í október

Felicity og Michael Bullock sýna dýralífsmyndir frá Kenýa í Nýheimum

Michael og Felicity eru hætt störfum og það gefur þeim tíma til að láta eftir sér að stunda áhugamál sitt, en þau eru bæði ástríðufullir náttúruunnendur. Hvenær sem tækifæri gefst reyna þau að heimsækja fjarlæga hluta heimsins til að fylgjast með og ljósmynda dýr í sínu náttúrulega umhverfi.

Margir fræðimenn spá því nú að öll stóru landspendýrin verði útdauð í náttúrunni um 2050. Útlitið hjá sumum tegundum er mjög alvarlegt. Aðeins 3000 tígrisdýr eru lifandi, þar af er u.þ.b. helmingurinn á Indlandsskaga á einangruðum skógarflæmum. Þessir smáu hópar verða fyrir óhóflegri innræktun og eru þar af leiðandi ófærir um að viðhalda nauðsynlegri fjölbreytni æxlunar sem þörf er á til viðhalds stofninum. Að auki er stundaður veiðiþjófnaður til að uppfylla eftirspurn fyrir kínversk töfralyf svo og eitranir þorpsbúa sem lögðu 80 af Indverska tígrastofninum að velli á síðasta ári. Það má vel vera að það sé of seint að bjarga þessari dásamlegu kattategund sem gæti verið útdauð innan fárra ára, en hvað sem því líður skulum við geyma örlög tígrisdýranna til betri tíma.

Þessi sýning beinist að dýralífi grasslétta Austur-Afríku og þá sérstaklega blettatígra, hlébarða og ljóna sem reika um sléttur Kenýa. Í Masai Mara héraðið í suður-Kenýa býr að mestum hluta þessara stóru katta í Afríku. Masai þjóðin er að mestu leyti fylgjandi villtu dýralífi og þeim fjármunum sem fylgir ferðamönnum í dag. En til eru þeir sem vilja girða graslendið af og breyta því í hveitiakra. Ef það gerðist myndi flökkulíf dýranna leggjast af og antilópurnar og gnýirnir svelta, einnig myndu rándýrin sem á þeim lifa hljóta sömu örlög. Eins og er hefur hinn stórkostlegi blettatígur, fljótasta landspendýrið sem nær allt að 120 km hraða, hrunið í stofnstærð niður í 10.000 dýr í allri Afríku. Jafnvel tilveru hins volduga ljóns sem eitt sinn var algengt um alla álfuna er ógnað, stofnstærðin sem var um 100.000 árið 1990 hefur dottið niður í tæplega 30.000 í dag.

Þess vegna hafa Michael og Felicity ákveðið að njóta samvista þessara dásamlegu dýra eins lengi og þau geta áður en það er orðið of seint. Á milli ferðalaga njóta þau þess að búa í fögru héraði Hornafjarðar umkringd stórkostlegum náttúruundrum Íslands.

Í Kenýa á þessum árstíma flykkjast risastórar hjarðir (yfir 3 milljónir) gnýja og sebrahesta frá Serengeti í Tanzaníu til Masai Mara í Kenýu. Þau elta regnið og nýsprottið grasið sem því fylgir. Á leið þeirra yfir slétturnar verða fyrir þeim ýmsar hindranir s.s. ólgandi Mara áin sem þau æða stjórnlaust yfir. Þessir búferlaflutningar eru þekktir sem eitt af sjö undrum náttúrulífsins. Óhjákvæmilega fylgja rándýrin hjörðunum í leit að góðri máltíð. Þetta er allsnægtatíð dýranna í þessari tiltölulega óspilltu náttúru Austur-Afríku.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica